Fotbolti.net
12.03.09 - 19:48
Magnús Már Einarsson

Sigurður Donys, Ævar og Marinó í Fjarðabyggð (Staðfest)

Frá undirritun samninga í dag.

Frá undirritun samninga í dag.

Canon

Mynd: Jón Guðmundsson

Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar (KFF) skrifaði í dag undir leikmannasamninga við Sigurð Donys Sigurðsson, Eirík Ingi Jónsson og Ævar Valgeirsson.
Sigurður Donys er uppalinn hjá Einherja Vopnafirði, en hefur leikið með Þór Akureyri, Huginn Seyðisfirði og Reyni Sandgerði undanfarin ár. Síðastliðið sumar spilaði Ævar með nágrannaliðinu Leikni Fáskrúðsfirði en Eiríkur er uppalinn hjá Fjarðabyggð. Allir þessir leikmenn spila væng- eða framherjastöður.

Fjarðabyggð hefur einnig fengið Marinó Óla Sigurbjörnsson að láni frá Leikni Fáskrúðsfirði. Marinó hefur undanfarin ár spilað með Leikni og var meðal annars valinn íþróttamaður Leiknis á dögunum. Marinó spilar aðallega í stöðu vinstri bakvarðar.

Þá er Fjarðabyggð búið að framlengja samninga við þá Jóhann Ragnar Benediktsson og Grétar Ómarsson. Allir þessir leikmenn að, frátöldum Sigurði Donys, eru uppaldir hjá aðildafélögum KFF.

Einnig var gerður nýr samningur við Landsbankann sem héldur áfram að vera einn af aðalstyrktaraðilum KFF. Merki bankans mun vera á búningum félagsins sem og öðru dreifingarefni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.