Fotbolti.net
12.04.07 - 16:53
Magnús Már Einarsson

Steingrímur Jóhannesson í KFS (Staðfest)

Steingrímur í leik með Selfyssingum síðastliðið sumar.

Steingrímur í leik með Selfyssingum síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Guðmundur Karl

Markahrókurinn reyndi Steingrímur Jóhannesson hefur gengið til liðs við Eyjaliðið KFS úr þriðju deild en hann hefur fengið leikheimild með liðinu.
Steingrímur sem verður 34 ára á árinu á einn A-landsleik að baki. Hann hefur skorað 81 mark í 221 leik í efstu deild fyrir ÍBV og Fylki en hann skoraði fimm mörk í sautján leikjum fyrir Eyjamenn árið 2005.

Á síðustu leiktíð lék Steingrímur með Selfyssingum í annarri deildinni þar sem hann skoraði fimm mörk í sextán leikjum.

Hann hefur eins og fyrr segir þegar fengið leikheimild með KFS og getur hann því leikið með liðinu gegn Augnablik í Lengjubikarnum á sunnudaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.