Fotbolti.net
12.05.06 - 13:49
Magnús Már Einarsson

Grindavík semur við Skota (Staðfest)

Fær Nígeríumann á reynslu

David Hannah með tilþrif í skoska boltanum.

David Hannah með tilþrif í skoska boltanum.

Canon

Mynd: Getty Images

Grindavík hefur fengið skoskan varnarmann að nafni David Hannah til liðs við sig en þessi reynslubolti á yfir fjögurhundruð leiki að baki í heimalandinu samkvæmt því sem fram kemur í Morgunblaðinu í morgun.
Hannah hefur leikið með Dundee Utd., Celtic, St. Johnstone, Ross County, Hamilton Thistle og nú síðast Brechin og þá hefur hann leikið með enska liðinu Bury og með liði AEL Limassol á Kýpur.

Hann þekkir Sigurð Jónsson þjálfara Grindavíkur en þeir léku saman hjá Dunde United þar sem Hannah var fyrirliði á sínum tíma en Celtic keypti hann þaðan á 650 þúsund pund.

Þá kemur nígerískur varnarmaður til Grindvíkinga á reynslu í dag og verður spennandi að sjá hvernig hann plummar sig hér á landi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.