12.05.06 - 16:20
Magnús Már Einarsson
Steingrímur Jóhanesson í Selfoss (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson


Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Selfyssingar hafa fengið gífurlegan liðsstyrk fyrir aðra deildina í sumar en Steingrímur Jóhannesson hefur ákveðið að leika með þeim. Steingrímur sem hefur skorað grimmt fyrir Eyjamenn í gegnum tíðina hafði ákveðið að leggja skóna á hilluna en honum hefur nú snúist hugur.
Steingrímur sem á einn A-landsleik að baki hefur skorað 81 mark í 221 leik í efstu deild fyrir ÍBV og Fylki en hann skoraði fimm mörk í sautján leikjum fyrir Eyjamenn í fyrra.
Það er ljóst að Selfyssingar eru stórhuga en eins og kemur fram í fréttinni á undan voru þeir að semja við Englending sem verður fjórði erlendi leikmaðurinn í herbúðum þeirra.
Það er ljóst að Selfyssingar eru stórhuga en eins og kemur fram í fréttinni á undan voru þeir að semja við Englending sem verður fjórði erlendi leikmaðurinn í herbúðum þeirra.
Heimild: Heimasíða Selfoss
