Fotbolti.net
12.05.07 - 05:42
Magnús Már Einarsson

Magnús Ólafsson í ÍR (Staðfest)

Magnús Ólafsson í ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

ÍR úr annarri deild hefur fengið framherjann fljóta Magnús Ólafsson. Magnús skoraði þrjú mörk í sjö leikjum með Njarðvík síðastliðið sumar áður en hann fór í Keflavík í lok júlí.
Magnús hefur leikið með liðum eins og KR, Haukum, Víði, Reyni Sandgerði og fleirum. Hann var markahæstur í annari deild karla árið 2001 þegar að hann gerði 24 mörk með Haukum en þaðan fór hann í KR.

Magnús hefur þegar fengið leikheimild með ÍR og er hann því löglegur með liðinu gegn Magna á Grenivík í fyrstu umferðinni í annarri deild á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.