Fotbolti.net
12.05.07 - 11:08
Magnús Már Einarsson

Steingrímur og Kjartan í KS/Leiftur (Staðfest)

Steingrímur Örn Eiðsson.

Steingrímur Örn Eiðsson.

Canon

Mynd: ka-sport.is

KS/Leiftur úr annarri deild hefur fengið liðsstyrk en vinstri bakvörðurinn Steingrímur Örn Eiðsson og miðjumaðurinn Kjartan Ingólfur Helgason hafa gengið til liðs við félagið.
Steingrímur sem er 35.aldursári er vinstri bakvörður. Hann hefur áður leikið með KA, Leiftri og KS en í fyrra lék hann tólf leiki í fyrstu deildinni með KA-mönnum.

Kjartan sem er miðjumaður lék síðast í Noregi með Brodd en hann lék áður með Leiftri og FH. Þess má til gamans geta að hann er bróðir Auðuns Helgasonar leikmanns FH.

Steingrímur verður löglegur með KS/Leiftri gegn Hetti á morgun en Kjartan hefur ekki ennþá fengið leikheimild.

Heimild: Heimasíða Leifturs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.