Fotbolti.net
12.05.08 - 21:24
Magnús Már Einarsson

Jose Bosingwa til Chelsea (Staðfest)

Jose Bosingwa til Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur gengið frá kaupunum á portúgalska hægri bakverðinum Jose Bosingwa en hann kemur til félagsins frá Porto á 16,2 milljónir punda.
Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur gert þriggja ára samning við Chelsea og kemur til liðsins eftir EM í sumar.

,,Ég spilaði hjá stóru félagi, Porto og núna mun ég spila með stærra félagi. Markmið mitt er að vinna titla. Ég á vini hjá Chelsea og þetta er félag sem ég tel að geti hjálpað mér að bæta mig á hverju ári og vaxa sem leikmaður," sagði Bosingwa.

,,Mig hefur alltaf dreymt um að spila á Englandi, ég horfði alltaf á ensku úrvalsdeildina sem barn, ég elska enska leikinn og núna þegar ég er kominn hingað, ætla ég að reyna að leggja hart að mér og gera mitt besta."

Bosingwa hefur verið fastamaður hjá Porto undanfarin þrjú ár en áður lék hann með Boavista.

Fyrir þremur árum lenti hann í slæmu bílslysi en slapp án mjög alvarlegra meiðsla. Sandro Luis, félagi hans, missti hins vegar annan fótinn í bílslysinu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.