Fotbolti.net
12.05.11 - 07:00
Elvar Geir Magnússon

Fórnarlambið úr Þórs-hrekknum í Völsung (Staðfest)

Fórnarlambið úr Þórs-hrekknum í Völsung (Staðfest)
Canon

Mynd: Vefur Þórs

Kristján Steinn Magnússon hefur verið lánaður til Völsungs á Húsavík sem leikur í 2. deild.

Hann er á 21. aldursári og er samningsbundinn Þór Akureyri en hann hefur spilað 25 leiki fyrir liðið í deild og bikar.
Kristján Steinn er örvfættur kantmaður en hann verður ekki með Völsungi í fyrsta leik liðsins í 2. deildinni um komandi helgi þegar liðið mætir Fjarðabyggð. Hans fyrsti leikur verður líklega gegn ÍH 21. maí á Ásvöllum.

Margir gætu kannast við Kristján úr heimsfrægum hrekk Þórsara úr æfingaferð á Spáni en hér að neðan má sjá hrekkinn hressa.

Heimild: volsungur.123.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.