12.06.07 - 10:26
Magnús Már Einarsson
Tobias Linderoth til Galatasaray (Staðfest)

Tobias Linderoth og Peter Crouch berjast um boltann.

Mynd: Getty Images

Tobias Linderoth fyrirliði FC Köbenhvan og leikmaður sænska landsliðsins hefur gert þriggja ára samning við tyrkneska liðið Galatasaray.
Þessi 28 ára gamli leikmaður mun fara til Galatasaray fyrsta júlí næstkomandi en FC Köbenhavn vildi ekki gefa upp kaupverðið.
Linderoth hefur skorað sex mörk í 127 leikjum fyrir Köbenhavn síðan hann kom til félagsins frá Everton árið 2004.
,,Ég og fjölskylda mín áttum frábæran tíma í Kaupmannahöfn, með dönskum meistaratitlum og þáttöku í Meistaradeildinni. Félagið og allt fólkið hér mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu," sagði Linderoth.

Heimild: Reuters