12.06.09 - 12:24
Magnús Már Einarsson
Stefán Þór Þórðarson til Norrköping (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson
Stefán Þór Þórðarson hefur gert tveggja mánaða samning við sænska félagið Norrköping en þetta kemur fram á Vísi.
Stefán gekk í raðir Vaduz í Liechtenstein í lok janúar en samningur hans við félagið er nú runninn út.
Norrköping leikur í næstefstu deild í Svíþjóð en Stefán lék með liðinu 2005-2007 og er í miklum metum þar.
Síðastliðið sumar lék Stefán Þór með Skagamönnum en eftir tímabilið tók hann ákvörðun um að hætta í fótbolta.
Hann hætti við þá ákvörðun í vetur og gekk í raðir Vaduz og nú er ljóst að hann mun leika í Svíþjóð á næstunni.

Heimild: Vísir