Fotbolti.net
12.06.09 - 16:01
Magnús Már Einarsson

Birmingham kaupir Scott Dann frá Coventry (Staðfest)

Birmingham kaupir Scott Dann frá Coventry (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham City hefur keypt Scott Dann fyrirliða Coventry en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Dann er 22 ára gamall varnarmaður en hann var líka á óskalista Wolves.

Birmingham náði hins vegar að ganga frá samningum við Dann í dag og því verður hann með liðinu í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Dann heur verið lykilmaður hjá Coventry síðan hann kom til félagsins frá Walsall í janúar 2008.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem Birmingham fær í sumar en áður hafði félagið krækt í Christian Benitez og Stephen Carr.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.