Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 12:38
Elvar Geir Magnússon
Nýtt númer og Trent verður aftan á bakinu
Trent í treyju númer 19 með enska landsliðinu.
Trent í treyju númer 19 með enska landsliðinu.
Mynd: EPA
Trent Alexander-Arnold verður númer 12 hjá Real Madrid en hann var formlega kynntur hjá spænska stórliðinu í dag, áður en hann heldur með liðsfélögum sínum á HM félagsliða í Bandaríkjunum.

Það var ljóst að hann gat ekki fengið númerið 66, sem hann hafði gert að sínu hjá Liverpool. Í La Liga mega hámark vera 25 leikmenn skráðir í hóp og þeir verða að bera treyjunúmer 1-25 samkvæmt reglum.

Trent verður aftan á treyjunni hans hjá Real Madrid en ekki Alexander-Arnold. Hann segir að þetta muni auðvelda fólki erlendis sem sé líklegast til að kalla hann einfaldlega Trent.

Treyja númer tólf hefur verið laus síðan Eduardo Camavinga skipti yfir í númer sex á síðasta ári.




Athugasemdir