Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fös 12. júní 2026 19:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikarinn: Öruggur sigur hjá Blikum
Ágúst Orri innsiglaði sigur Blika
Ágúst Orri innsiglaði sigur Blika
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ægir 0 - 3 Breiðablik
0-1 Stefan Dabetic ('8 , sjálfsmark)
0-2 Viktor Karl Einarsson ('41 )
0-3 Ágúst Orri Þorsteinsson ('62 )
Lestu um leikinn

Breiðablik er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir öruggan sigur á Ægi í Þorlákshöfn í kvöld. Blikar komust yfir snemma leiks þegar Stefan Dabetic varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net eftir fyrirgjöf frá Óla Val Ómarssyni.

Ægismenn fengu fínar sóknir í kjölfarið en Breiðablik tvöfaldaði forystuna undir lok fyrri hálfleiksins þegar Viktor Karl Einarsson skoraði.

Ágúst Orri Þorsteinsson gerði síðan svo gott sem út um leikinn eftir rúmlega klukkutíma leik. Arnar Bjarki Gunnleifsson, sem var nýkominn inn á sem varamaður, vann boltann, hann sendi á Aron Bjarnason sem sendi á Ágúst sem skoraði.

Marko Panic var nálægt því að klóra í bakkann fyrir Ægi. Hann fékk boltann inn á markteig en Anton Ari Einarsson gerði vel og sá við honum.

Breiðablik er komið áfram í undanúrslitin en það verður dregið í kvöld eftir leik ÍA og Víkings.
Slapp
banner
banner