Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 12. júní 2026 17:30
Elvar Geir Magnússon
Gvardiol efstur á óskalista Mourinho
Mynd: EPA
TeamTalk segir að Josko Gvardiol, varnarmaður Manchester City, sé efstur á óskalista Jose Mourinho, stjóra Real Madrid, sem hyggst styrkja varnarlínu sína.

Riccardo Calafiori hjá Arsenal og Levi Colwill hjá Chelsea eru líka á blaði.

Mourinho vill fá fjælhæfan varnarmann og er Calafiori næstur á óskalistanum á eftir Gvardiol. Arsenal er þó alls ekki á þeim buxunum að selja hann.

Gvardiol hefur verið hjá City síðan hann kom fyrir um 78 milljónir punda frá RB Leipzig.
Slapp