Newcastle hefur endurvakið áhuga sinn á James Trafford, markverði Man City. David Ornstein hjá The Athletic greinir frá þessu. Félagið sýndi honum áhuga á liðnu tímabili.
Félögin eru ekki í viðræðum eins og er en Trafford ætlar að taka ákvörðun um framtíð sína eftir HM í sumar. Trafford er 23 ára og er í landsliðshópi Englands á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Hann gekk til liðs við City frá Burnley síðasta sumar og skrifaði undir fimm ára samning. Gianluigi Donnarumma gekk hins vegar til liðs við City í kjölfarið og hefur eignað sér stöðuna.
Trafford kom aðeins við sögu í fjórum leikjum í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

