Portúgal hefur leik á HM þegar liðið mætir Kongó í K-riðli þann 17. júní.
Liðið vann síðustu tvo æfingaleikina sína fyrir mótið gegn Nígeríu og Síle.
Liðið vann síðustu tvo æfingaleikina sína fyrir mótið gegn Nígeríu og Síle.
Cristiano Ronaldo er orðinn 41 árs gamall og er á leið á sitt sjötta heimsmeistaramót. Hann er klár i slaginn.
„Ég er góður líkamlega. Hafið þið ekki séð mig spila? Þetta hefur gengið vel en er þreytandi þar sem við leggjum hart að okkur," sagði Ronaldo.
„Við höfum verið með yfirhöndina í leikjunum en það sem skiptir mestu máli er þegar boltinn byrjar að rúlla þann 17. júní. Fyrsti leikurinn og þá er pressan sem mest, þar sjáum við raunverulega meistara."
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




