Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fös 12. júní 2026 17:00
Elvar Geir Magnússon
Bikarinn og HM aðalmálið á X977 á morgun
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður á sínum stað í beinni á X977 á morgun milli 12 og 14, eins og venjan er á laugardögum.

Elvar Geir og Tómas Þór hafa umsjón með þættinum. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður á RÚV er gestur þáttarins.

Aðalmálið í þættinum eru 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins og auðvitað heimsmeistarakeppnin sem er farin í gang.

Þá verður næsta umferð í Bestu deildinni skoðuð og Lengjudeildin.


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Slapp
banner