Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 12. júní 2026 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fáum við einhvern tímann að sjá þessa sóknarlínu?
Eimskip
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikmenn eins og Thelma Karen Pálmadóttir og Linda Líf Boama hafa komið skemmtilega inn í íslenska kvennalandsliðið undanfarin misseri.

Rætt var um innkomu þeirra í liðið í Uppbótartímanum og talað um það sé jákvæðan punkt í undankeppninni fyrir HM sem var að klárast.

„Thelma og Linda, þessar tvær, þetta er akkúrat það sem maður fagnar að sjá," sagði Magnús Haukur Harðarson.

Það vantaði Sveindísi Jane Jónsdóttur í þetta verkefni en það væri áhugavert að sjá hana og Thelmu Karen þróast saman sem kantmenn liðsins með Lindu Líf upp á topp. Það væri mjög áhugaverð sóknarlína sem gaman væri að sjá.

„Við munum aldrei fá að sjá það," sagði Magnús Haukur en það var rætt um það í þættinum að það mætti svo sannarlega hrista meira upp í liðinu á milli leikja.
Uppbótartíminn - Rúst í Laugardal, lið fá einkunnir og Sara komin heim
Slapp
banner
banner