Fotbolti.net
12.07.06 - 12:00
Hafliði Breiðfjörð

Íslenskur unglinga landsliðsmaður til Mallorca (Staðfest)

Pavlov á Spáni er hann æfði með Mallorca fyrir tveimur árum síðanl

Pavlov á Spáni er hann æfði með Mallorca fyrir tveimur árum síðanl

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Marko Pavlov unglingalandsliðsmaður Íslands er genginn í raðir spænska stórliðsins Mallorca þar sem hann hefur skrifað undir eins árs unglingasamning en það er Morgunblaðið sem greinir frá þessu í morgun.
Pavlov gekk til liðs við franska 2. deildarliðið Caen í fyrra þar sem hann lék með unglingaliðinu og bauðst svo að semja áfram til þriggja ára en hann valdi hinsvegar að fara til Spánar samkvæmt Morgunblaðinu.

Marko er 18 ára gamall og hefur verið búsettur á Íslandi frá því hann var tíu ára gamall er hann fluttist hingað með föður sínum, Dragi Pavlov sem hefur starfað við þjálfun hér á landi með Neista, Hetti og Stjörnunni en í dag þjálfar hann kvennalið FH.

Marko lék með Stjörnunni og hefur leikið þrjá leiki með U19 ára landsliði Íslands og 6 með U17 ára landsliðinu.

Heimild: Morgunblaðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.