Fotbolti.net
12.07.06 - 14:05
Magnús Már Einarsson

Cisse lánaður til Marseille (Staðfest)

Cisse lánaður til Marseille (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Marseille hefur fengið Djibril Cisse framherja Liverpool á láni út komandi tímabil með möguleika á að kaupa hann síðar meir en þetta staðfesti franska félagið í dag.
Hinn 24 ára gamli Cisse kom til Liverpool fyrir metfé eða fjórtán milljónir punda frá Auxerre árið 2004 sagði frá því fyrr í sumar að hann væri á förum frá Liverpool.

Þessi snöggi leikmaður er nú að jafna sig eftir að hafa fótbrotnað í leik með franska landsliðinu gegn Kína fyrir HM en talið er að hann verði kominn á fullt í október.

Cisse hefur áður lent í slæmu fótbroti en í október 2004 brotnaði hann gegn Blackburn Rovers og var frá þar til um vorið 2005.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.