12.07.06 - 14:24
Magnús Már Einarsson
Hamann til Manchester City (Staðfest)

Hamann sannfærir eiginkonu sína um kosti þess að fara til Manchester City.

Mynd: Getty Images

Þýski miðjumaðurinn Dietmar Hamann hefur gert tveggja ára samning við Manchester City eftir að Rafael Benitez stjóri Liverpool leyfði honum að yfirgefa félagið.
Hamann sem er 32 ára hafði gert samkomulag við Bolton en honum snérist hugur og í kjölfarið ákvað hann að fara til City eftir sjö ára dvöl hjá Liverpool þar sem hann skoraði ellefu mörk í 283 leikjum.
Eftir að hafa leikið með Bayern Munchen og Newcastle kom Hamann til Liverpool á átta milljónir punda til Liverpool þar sem hann vann átta medalíur á sjö ára ferli.
Hann ákvað hins vegar að yfirgefa Liverpool í sumar þar sem hann var aftarlega í goggunarröðinni á miðjunni á eftir Steven Gerrard, Xabi Alonso og Momo Sissoko.