Fotbolti.net
12.07.06 - 17:20
Guðmundur Dagur Ólafsson

Damien Francis til Watford (Staðfest)

Damien Francis

Damien Francis

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni, Watford, hafa fengið liðstyrk fyrir komandi átök en þeir gengu í dag frá kaupum á miðjumanninum Damien Francis frá Wigan en talið er að kaupverðið sé um 2 milljónir punda.
Francis spilaði reglulega fyrir Wigan á síðasta tímabili en hann bjóst ekki við að spila mikið á komandi tímabili og því var hann fljótur að skrifa undir hjá Watford. Hann er fimmti leikmaðurinn sem félagið fær til sín í sumar.

"Damien bætir miðjuna okkar talsvert," sagði Adrian Boothroyd stjóri Watford. "Ég þekki hann vel frá því ég var hjá Norwich og hann er atvinnumaður út í gegn."

"Hann mun hjálpa okkur mikið í Úrvalsdeildinni og hjálpað okkur að byggja upp það sem við byrjuðum á á síðasta tímabili," bætti Boothroyd við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.