12.07.07 - 10:56
Magnús Már Einarsson
Jerzy Dudek til Real Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur fengið pólska markvörðinn Jerzy Dudek en hann kemur frítt til félagsins eftir að hafa yfirgefið Liverpool fyrr í sumar.
Dudek verður varamarkvörður fyrir Iker Casillas hjá Real Madrid en spænska félagið hefur verið að leita að markverði eftir að hafa selt hinn unga Diego Lopez til Villareal á sex milljónir evra í síðastliðnum mánuði.
Bernd Schuster nýráðinn þjálfari Real Madrid kláraði samninga við Dudek eftir að hafa í vikunni gengið fá því að varnarmennirnir Pepe og Cristoph Metzelder muni koma til Real. Real reyndi einnig að fá Francesco Toldo en launakröfur hans þóttu of háar.
Dudek var alls sex tímabil hjá Liverpool en hann var varamarkvörður félagsins síðustu tvö tímabilin, þar sem að Jose Reina stóð á milli stanganna. Dudek var einnig orðaður við Bolton og Manchester City en hann hafði áhuga á að fara til Spánar.

Heimild: Sky