12.07.07 - 19:09
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Shota Arveladze til Levante frá AZ Alkmaar (Staðfest)

Shota Arveladze spilaði á sínum tíma með Rangers

Mynd: Getty Images

Levante hefur gengið frá kaupunum á hinum georgíska Shota Arveladze frá hollenska félaginu AZ Alkmaar.
Þessi 34 ára gamli leikmaður stóðst læknisskoðun í Valencia í dag og skrifaði undir eins árs samning með möguleika á öðru ári.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Levante reynir að fá Arveladze til liðs við sig en síðasta sumar tókst spænska félaginu ekki að komast að samkomulagi við Alkmaar.
Arveladze, sem er 34 ára gamall, hafði áður spilað meðal annars með Trabzonspor, Ajax Amsterdam og Glasgow Rangers. Þá hefur hann skorað 22 mörk í 53 leikjum fyrir Georgíu.

Heimild: Sky