12.07.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Lisandro Lopez til Lyon (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Olympique Lyon hefur keypt argentínska framherjann Lisandro Lopez frá Porto á 24 milljónir evra.
Lopez, sem er 26 ára, skrifaði udnir fimm ára samning við Lyon í gærkvöldi eftir að hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu.
Hjá Lyon mun Lopez fá það hlutverk að fylla skarðið sem Karim Benzema skilur eftir sig en hann fór til Real Madrid á dögunum.
Lopez skoraði sex mörk í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð en hann hefur hjálpað Porto að vinna portúgölsku deildina undanfarin ár.

Heimild: Reuters