12.07.09 - 10:21
Hafliði Breiðfjörð
Paul Robinson lánaður til Bolton (Staðfest)

Robinson í leik með WBA.

Mynd: Getty Images

Robinson í leik með WBA.

Mynd: Getty Images
Bolton hefur staðfest að varnarmaðurinn Paul Robinson er genginn til liðs við félagið á láni frá WBA. Bolton hefur verið á eftir Robinson í allt sumar en Gary Megson stjóri liðsins vill auka kostina varnarlega.
Robinson hafði lýst því yfir að hann vildi fara frá WBA þegar liðið féll úr úrvalsdeildinni í vor. Félögin höfðu verið í samningaviðræðum um verðmat á Robinson sem er þrítugur vinstri bakvörður en nú hafa þau náð saman.
Megson þekkir vel til Robinson því þeir unnu saman er hann var knattspyrnustjóri WBA en þá fékk hann Robinson til félagsins frá Watford.
,,Ég er ánægður með að við höfum náð að ná í hann,\" sagði Megson. ,,Hann hefur mikla reynslu í úrvalsdeildinni og er svona leikmaður eins og stuðningsmenn Wanderers vilja sjá,\" hélt hann áfram.

Heimild: Sky