Fotbolti.net
12.07.11 - 13:20
Hörður Snævar Jónsson

Tottenham fær ungstirni frá Barcelona (Staðfest)

Tottenham fær ungstirni frá Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur staðfest kaup á Cristian Ceballos frá Barcelona.
Ceballos er aðeins átján ára og kom til reynslu hjá Spurs undir lok síðustu leiktíðar þar sem han stóð sig vel.

Hann er sóknarsinnaður miðjumaður en hann fór til reynslu hjá Chelsea í mars og kom svo til Spurs undir lok síðustu leiktíð.

Hann mun fara í unglingalið félagsins þar sem forráðamenn Spurs vona að hann þrói leik sinn.

,,Ceballos æfði vel og sýndi mikla hæfileika, hann æfði hér undir lok síðustu leiktíðar og slatta með aðalliðinu,\" sagði Tim Sherwood, einn af tæknilegum ráðgjöfum Harry Redknapp.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.