12.07.11 - 21:45
Magnús Már Einarsson
Djibril Cisse til Lazio (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Lazio hefur fengið framherjann Djibril Cisse í sínar raðir frá Panathinaikos í Grikkalandi. Þessi 29 ára gamli leikmaður skrifaði undir fjögurra ára samning við Lazio í dag.
Cisse skoraði meira en 50 mörk á tveimur tímabilum í Grikklandi en hann ákvað í vor að yfirgefa herbúðir Panathinaikos.
Cisse hefur á ferli sínum einnig leikið með Auxerre, Liverpool, Olympique Marseille og Sunderland.
Þá hefur hann skoraði níu mörk í 40 landsleikjum með Frökkum en þessi litríki leikmaður hefur leikið fáa landsleiki undanfarin ár.
Cisse er annar framherjinn sem Lazio fær í sínar raðir í sumar en Miroslav Klose kom til félagsins á dögunum.

Heimild: Reuters