Fotbolti.net
12.07.26 - 14:24
Brynjar Ingi Erluson

Ronaldo í áætlunum nýja þjálfarans - „Verður aldrei vandamál fyrir mig eða landsliðið“

Cristiano Ronaldo gæti farið með Portúgal á EM

Cristiano Ronaldo gæti farið með Portúgal á EM

Canon

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo hefur spilað á sínu síðasta heimsmeistaramóti, en samkvæmt portúgölskum miðlum er mjög ólíklegt að hann hafi spilað sinn síðasta landsleik.
Ronaldo, sem er 41 árs gamall, tilkynnti eftir tapið gegn Spáni í 16-liða úrslitum að þetta hefði verið hans síðasta heimsmeistaramót.

Tilfinningin hefur verið sú að þetta hafi einnig verið hans síðasti landsleikur, en miðað við fréttir síðustu daga gæti hann haldið áfram með landsliðinu.

Roberto Martínez er hættur og Jorge Jesus er tekinn við, en hann stýrði Al Nassr á síðustu leiktíð.

Jesus vann deildina með Ronaldo og samband þeirra er sagt afar gott. Hann elskar að vinna með Ronaldo og því er góður möguleiki á að þeir fari saman á Evrópumótið eftir tvö ár.

„Ég er ekki búinn að ræða við Cristiano, en hann verður aldrei vandamál fyrir mig eða landsliðið. Varðandi umræðuna þá geta allir hugsað það sem þeir vilja. Þegar ég þarf að taka ákvörðun mun ég tala við Cristiano og alla aðra.“

„Cristiano er tákn Portúgals og mun fara í sögubækurnar. Ég fékk þann mikla heiður að vinna með honum og það var mjög þægilegt samstarf.“

„En ég verð samt að tala við hann og vita hvað hann vill gera. Hann sagði mér alltaf að hann vildi klára ferilinn hjá Al Nassr. Ég mun kalla hann inn í landsliðið ef ég fæ tækifæri til þess.“

„Á síðasta ári var það mjög skýrt að hann er leikmaður og ég er þjálfarinn. Það eru stór egó í öllum liðum og það er mun erfiðara að vinna með leikmönnum sem telja sig frábæra heldur en þeim sem eru raunverulega góðir.“

„Þetta er staðan í landsliðinu. Þetta eru allt frábærir leikmenn hjá bestu liðum Evrópu. Þar vinna þeir titla og við erum hér til að vinna titla. Allir verða að leggja sitt af mörkum.“

„Liðið er með mikil gæði og ég hef trú á öllum. Nýir leikmenn munu koma fram á sjónarsviðið á næstu fjórum árum og nú mun ég koma enn meira að þróun unglingastarfsins,“
sagði Jesus á blaðamannafundi er hann var kynntur fyrir portúgölskum miðlum.
Jorge Jesus er tekinn við Portúgal

Jorge Jesus er tekinn við Portúgal

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.