„Gæti orðið besti leikmaður í sögu Englands“

Jude Bellingham

Mynd: EPA

Gary Lineker er mikill aðdáandi Bellingham

Mynd: EPA

Jude Bellingham

Mynd: EPA
Gary Lineker, fyrrum landsliðsmaður Englands, segir Jude Bellingham í lykilstöðu um að verða besti leikmaður í sögu Englands.

TENGT EFNI
Maður dagsins á HM - Fær of mikla gagnrýni
Bellingham hefur verið magnaður með Englandi síðan hann lék sinn fyrsta landsleik árið 2020.
Hann er á sínu fjórða stórmóti með landsliðinu. Hann fór með Englendingum í úrslit Evrópumótsins árið 2021 og í 8-liða úrslit HM 2022.
Hann fór aftur með Englandi í úrslit EM árið 2024 og skoraði svo bæði mörkin í sigrinum á Noregi í gær sem tryggði liðinu sæti í undanúrslitum HM.
Bellingham er kominn með sex mörk á HM og er aðeins þriðji Englendingurinn til að skora fimm mörk eða meira á einu heimsmeistaramóti, ásamt Gary Lineker og Harry Kane.
Lineker telur að Bellingham gæti orðið besti leikmaður í sögu enska landsliðsins haldi hann áfram á sömu braut.
„Ég myndi ganga svo langt að segja að það sé möguleiki á því að hann gæti einn daginn orðið besti leikmaður í sögu Englands. Það er mjög stórt kall.“
„Við höfum átt marga frábæra leikmenn. Sumir náðu ekki að standa sig nægilega vel fyrir land og þjóð, á meðan aðrir gerðu það.“
„Maður lítur til baka og horfir á menn eins og Bobby Charlton, sem ég myndi setja í þann hóp. Harry Kane er þar líka, ásamt fleirum.“
„En miðað við aldur Bellingham og það sem hann er að gera, að taka landsliðið á herðar sér og koma því yfir línuna, þá er hann ofurstjarna í mínum augum,“ sagði Lineker í Rest is Football á Netflix.