Fotbolti.net
12.08.11 - 10:27
Magnús Már Einarsson

Jose Enrique til Liverpool (Staðfest)

Jose Enrique til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Liverpool

Liverpool hefur gengið frá kaupum á vinstri bakverðinum Jose Enrique en hann kemur til félagsins frá Newcastle.

Enrique er fimmti leikmaðurinn sem Liverpool fær í sumar á eftir Charlie Adam, Jordan Henderson, Stewart Downing og Alexander Doni.
,,Þetta er einn besti dagur lífs míns,\" sagði Enrique eftir að hann skrifaði undir.

,,Ég er kominn í eitt stærsta félagið, ekki bara á Englandi heldur í heiminum. Ég er mjög ánægður.\"

Liverpool mætir Sunderland í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á morgun og Enrique segist vera tilbúinn að spila þar.

,,Ef stjórinn þarf á mér að halda þá er ég tilbúinn að spila. Ég hef spilað með Newcastle á undirbúningstímabilinu. Ég hef ekki spilað alla leiki en ég hef spilað tvo eða þrjá og er klár ef stjórinn vill láta mig spila.\"

Heimild: Heimasíða Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.