12.08.11 - 18:47
Magnús Már Einarsson
Keith Andrews til Ipswich (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Ipswich Town hefur fengið írska miðjumanninn Keith Andrews á láni frá Blackburn en samningurinn gildir þar til í janúar.
Þessi þrítugi leikmaður var að glíma við nárameiðsli á síðasta tímabili en hann lék einungis fimm leiki þá.
Þessi þrítugi leikmaður var að glíma við nárameiðsli á síðasta tímabili en hann lék einungis fimm leiki þá.
,,Ég vildi ekki vera inn og út úr liðinu í ár og ég þarf að spila fótbolta til að geta spilað með landsliðinu,\" sagði Andrews.
Andrews býst ekki við að leika fleiri leiki með Blackburn á ferlinum en hann hefur ekki verið vinsæll hjá stuðningsmönnum liðsins.
Andrews býst ekki við að leika fleiri leiki með Blackburn á ferlinum en hann hefur ekki verið vinsæll hjá stuðningsmönnum liðsins.
Heimild: BBC
