12.08.11 - 14:32
Magnús Már Einarsson
Nikola Kalinic til Úkraínu (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Úkraínska félagi Dnipro hefur keypt framherjann Nikola Kalinic frá Blackburn Rovers en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Kalinic, sem er 23 ára gamall Króati, kom til Blackburn frá Hadjuk Split árið 2009.
Hann skoraði sjö mörk í 33 leikjum á sínu fyrsta tímabili og í fyrra skoraði hann átta mörk í 21 leik.
Kalinic, sem er 23 ára gamall Króati, kom til Blackburn frá Hadjuk Split árið 2009.
Hann skoraði sjö mörk í 33 leikjum á sínu fyrsta tímabili og í fyrra skoraði hann átta mörk í 21 leik.
Kalinic spilaði þó afar lítið síðari hlutann á síðasta tímabili og eftir að framherjinn David Goodwillie kom til Blackburn í síðustu viku var ljóst að hann var ekki inni í myndinni hjá Steve Kean stjóra Blackburn.
Heimild: BBC
