Fotbolti.net
12.08.11 - 21:05
Magnús Már Einarsson

Joel Campbell til Arsenal (Staðfest)

Arsene Wenger stjóri Arsenal.

Arsene Wenger stjóri Arsenal.

Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur keypt framherjann Joel Campbell frá Deportivo Saprissa í Kosta Ríka.
Þessi 19 ára gamli leikmaður á sex landsleiki að baki en hann skoraði gegn Bolivíu í Suður-Ameríkubikarnum í sumar.

,,Hann hefur sýnt að hann hefur mikla hæfileika miðað við aldur og hann hefur staðið sig vel með landsliði sínu,\" sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal.

,,Við hlökkum til að klára að ganga frá síðustu smáatriðunum í kringum samninginn og vinna með Joel þegar hann kemur til Arsenal.\"

Campbell hefur leikið með aðalliði Deportivo Saprissa undanfarin tvö ár en hann var á láni hjá Puntarenas hluta af síðasta tímabili.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.