Fotbolti.net
12.09.06 - 13:58
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Agathe til Aston Villa (Staðfest)

Agathe er kominn til Villa

Agathe er kominn til Villa

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Didier Agathe hefur skrifað undir samning við úrvalsdeildarfélagið Aston Villa eftir að hafa staðið sig vel á reynslu hjá félaginu.
Agathe reyndi fyrir sér hjá Blackburn í júlí eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá Celtic, en náði ekki að heilla forráðamenn liðsins. Agathe, sem er 31 árs gamall, spilaði undir stjórn Martin O´Neill, núverandi stjóra Villa, hjá Celtic.

,,Hann er ekki bara hér til að stækka hópinn. Hann er hér vegna þess að ég tel hann hafa hæfileikana og hungrið til að ganga til liðs við okkur og standa sig vel. Hann spilaði frábærlega í mörg ár hjá Celtic en eitthvern veginn datt hann úr liðinu. Það gerist stundum," sagði O'Neill.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.