12.09.10 - 12:20
Hafliði Breiðfjörð
Ásgrímur Helgi tekur við Álftanes (Staðfest)

Margrét Eva, Sigrún Auður, Júlíana og Halla.

Mynd: Aðsend

Ásgrímur Helgi Einarsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Álftanes og tekur við starfinu af eiginkonu sinni, Sirrý Hrönn Haraldsdóttur.
Frá þessu var gengið á lokahófi liðsins í gær en lið Álftanes var að leika sinn fyrsta ár í 1. deild kvenna og þótti takast mjög vel. Stígandi var í leik liðsins og sást það vel á síðustu 4 leikjum liðsins, 3 sigrar og eitt jafntefli.

Á lokahófinu voru veittar viðurkenningar fyrir sumarið og með fréttinni er mynd af sigurvegurunum. Frá vinstri Margrét Eva Einarsdóttir leikmaður ársins, Sigrún Auður Sigurðardóttir leikmaður leikmannanna, Júlíana Sigurgeirsdóttir efnilegasti leikmaðurinn og Halla Jónasdóttir mestar framfarir.
Ásgrímur þjálfaði síðast meistaraflokk kvenna hjá Aftureldingu þar til hann sagði upp störfum í lok júlí í sumar. Sirrý Hrönn Haraldsdóttir þjálfaði liðið í sumar en hættir nú þjálfun og sest í stjórn meistaraflokksráðsins.