Fotbolti.net
12.10.09 - 12:15
Magnús Már Einarsson

Helgi Sigurðsson í Víking R. (Staðfest)

Helgi Sigurðsson í Víking R. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn reyndi Helgi Sigurðsson hefur samið við sitt gamla félag Víking Reykjavík en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi nú í hádeginu. Helgi skrifaði undir þriggja ára samning við Víking en auk þess að leika með liðinu þá mun hann vinna að afreksstefnu með öðrum, þriðja og fjórða flokki félagsins.
Á dögunum samdi Helgi um starfslok hjá Val og nú hefur hann ákveðið að ganga í raðir Víkings.

Helgi, sem er 35 ára, lék á árum með Víkingi en hann varð Íslandsmeistari með liðinu árið 1991.

Helgi hefur verið hjá Val síðan fyrir tímabilið 2007 er hann kom til félagsins frá Fram. Á fyrsta ári hjá Val varð hann Íslandsmeistari hjá félaginu og var mjög iðinn við kolann í markaskoruninni.

Í sumar skoraði Helgi sjö mörk í nítján leikjum í Pepsi-deildinni sem og eitt mark í VISA-bikarnum.

Á atvinnumannaferli sínum lék Helgi í Þýsakalandi, Grikklandi, Noregi og Danmörku en hann hefur leikið 63 landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað tíu mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.