12.12.07 - 10:47
Hörður Snævar Jónsson
Teitur Þórðarsson ráðinn þjálfari Vancouver Whitecaps (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Teitur Þórðarson fyrrum þjálfari KR hefur tekið við kanadíska liðinu Vancouver Whitecaps og skrifaði Teitur undir tveggja ár samning við félagið.
Vancouver leikur í USL deildinni sem er næst sterkasta deildin í Bandaríkjunum og Kanada. Níu lið frá Bandaríkjunum leika í deildinni, tvö frá Kanada og eitt frá Púertó Ríko
,,Ég er mjög spenntur fyrir þessu tækifæri að taka við Vancouver Whitecaps. Ég er hrifin af hugsunum hérna og hlakkar til að leiða liðið til að verða atvinnumannalið," sagði Teitur við heimasíðu Vancouver Whitecaps.
Teitur Þórðarson tók við KR haustið 2005 og gerði fimm ára samning við félagið sem átti að gilda út árið 2010.
Á fyrsta ári í fyrra endaði KR í öðru sæti deildar og bikar en þrátt fyrir að hafa einn besta leikmannahóp landsins gekk Teiti ekki sem skildi og var látin taka pokann sinn þann 10 júlí á þessu ári eftir slakt gengi.
Teitur kom til KR eftir 29 ára fjarveru í útlöndum og hafði reynt ýmislegt á þeim árum. Sem leikmaður náði hann frábærum árangri og varð hann t.a.m. fyrsti leikmaðurinn til að leika í efstu deildinni í Svíþjóð.
Teitur lék einnig í Frakklandi og Sviss en þess má geta að er hann lék með RC Lens á árunum 1981-83 var hann undir stjórn Gérard Houllier, fyrrum knattspyrnustjóra Liverpool.
Sem þjálfari hefur hann einnig farið víða og hefur þjálfað í Svíþjóð, Noregi og Eistlandi og auk þess þjálfað eistneska landsliðið.

Heimild: Heimasíða Vancouver