13.01.09 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
James Beattie til Stoke City (Staðfest)

James Beattie í leik með Everton.

Mynd: Getty Images

James Beattie í leik með Everton.

Mynd: Getty Images
Stoke City hefur gengið frá kaupum á James Beattie sem kemur frá Sheffield United fyrir kaupverð sem gæti hækkað upp í 3,5 milljónir punda. Þetta var staðfest seint í gærkvöld en framherjinn sem er þrítugur gerði tveggja og hálfs árs samning við Stoke.
,,James er leikmaður sem hefur undraverða markaskorunartölfræði og ég er ánægður með að fá hann hingað,\" sagði Tony Pulis stjóri Stoke á vefsíðu félagsins.
,,Hann hefur meðaltalið rúmlega mark á annan hvern leik með Sheffield United, og hann hefur sannað sig sem markaskorari í efstu deild.\"
,,Við höfum fengið tvo frábæra leikmenn í Matthew Etherington og James en við erum enn að leita að tveimur eða þremur til viðbótar áður en glugginn lokar.\"
Beattie var líka ánægður með skiptin og sagði: ,,Ég var fenginn til að skora mörk. Stjórinn hefur verið frábær við mig, og sagt mér hvað hann vill að ég geri og hvert mitt hlutverk verður í liðinu. Ég er tilbúinn að gera aðra tilraun við úrvalsdeildina og ánægður með þetta tækifæri.\"

Heimild: BBC