Fotbolti.net
13.01.09 - 19:08
Magnús Már Einarsson

Bjarki Freyr og Jakob Spangsberg í Víking R. (Staðfest)

Ingvar Kale ekki með Víkingi í sumar

Jakob Spangsberg.

Jakob Spangsberg.

Canon

Mynd: Matthías Ægisson

Víkingur R. samdi í dag við markvörðinn Bjarka Frey Guðmundsson og framherjann Jakob Spangsberg.
Ingvar Þór Kale, markvörður Víkings undanfarin ár og fyrirliði síðasta sumar og getur ekki leikið með liðinu á komandi tímabili af persónulegum ástæðum.

Stjórn Víkings vill árétta að Ingvar er áfram samningsbundinn og vonast svo sannarlega til þess að þessi uppaldni Víkingur leiki með liðinu aftur í framtíðinni.

Bjarki Freyr mun væntanlega fá það hlutverk að fylla skarð Ingvars í sumar. Bjarki varði mark Þróttar í fyrra en ljóst var á dögunum að hann myndir yfirgefa herbúðir liðsins.

Þessi 32 ára gamli leikmaður skrifaði síðan nú undir kvöld undir tveggja ára samning við Víking.

Bjarki hefur einnig leikið með Keflavík, KR, Stjörnunni og ÍA hér á landi en hann var á mála hjá Keflvíkingum áður en hann gekk í raðir Þróttar fyrir síðasta tímabil.

Jakob Spangsberg hefur undanfarin ár leikið með Leikni en þessi knái Dani kom til félagsins árið 2004. Hann hefur síðan þá leikið með félaginu ef frá er talið sumarið 2006 en þá lék hann með Val.

Sumarið 2007 skoraði Jakob tíu mörk í tuttugu leikjum með Leikni og í sumar skoraði hann ellefu mörk í jafnmörgum leikjum. Hann skrifaði undir eins árs samning við Víking nú í kvöld.

Jakob er þessa stundina í Danmörku en Víkingar vonast til að hann verði kominn til landsins fyrir fyrsta leik liðsins í Reykjavíkurmótinu síðar í mánuðinum.

Heimild: Vikingur.net

Bjarki Freyr Guðmundsson.

Bjarki Freyr Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.