Skoska meistaraliðið Celtic er að ganga frá kaupum á pólska framherjanum Patryk Klimala en hann kemur frá Jagiellonia Bialystok
Klimala er 21 árs gamall og er kominn með 7 mörk og 3 stoðsendingar í 18 leikjum með Jagiellonia á þessari leiktíð. Böðvar Böðvarsson er liðsfélagi Klimala.
Þá hefur hann gert þrjú mörk fyrir U21- og U20 ára landslið Póllands en hann er nú á leið til Skotlands.
Samkvæmt Sky Sports þá fer Klimala í læknisskoðun hjá Celtic á morgun áður en gengið verður frá kaupunum.
Þetta verður fyrsti leikmaðurinn sem Celtic fær í janúar.
Athugasemdir