Fotbolti.net
13.02.12 - 11:00
Hafliði Breiðfjörð

Mick McCarthy rekinn frá Wolves (Staðfest)

Mick McCarthy á síðasta leik sínum með Wolves gegn WBA í gær. Hann hefur nú verið rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Wolves.

Mick McCarthy á síðasta leik sínum með Wolves gegn WBA í gær. Hann hefur nú verið rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Wolves.

Canon

Mynd: Getty Images

Wolves tilkynnti á vef sínum rétt í þessu að knattspyrnustjórinn Mick McCarthy hafi verið rekinn frá félagnu.
Þar segir að stjórn félagsins hafi tekið þessa ákvörðun eftir slakt gengi liðsins upp á síðkastið en liðið hefur aðeins fengið 14 stig úr síðustu 22 leikjum þrátt fyrir að hafa byrjað mótið vel.

Dropinn sem fyllti mælinn var svo 5-1 tap heima gegn WBA í gær og því var tekin ákvörðun um að láta McCarthy víkja.

Terry Connor mun stýra æfingum liðsins þar til búið verður að ráða nýjan þjálfara.

Mich McCarthy hafði tekið við Wolves í júlí árið 2006 og undir hans stjórn vann liðið Championship deildina tímabilið 2008-2009. Hann hélt liðinu svo í ensku úrvalsdeildinni síðustu tvær leiktíðir.

Eggert Gunnþór Jónsson landsliðsmaður Íslands leikur með Wolves.

Heimild: Vefur Wolves

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.