13.03.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Chris Gunter til Nottingham Forest á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nottingham Forest hefur fengið varnarmanninn Chris Gunter á láni frá Tottenham út þessa leiktíð.
Þessi 19 ára gamli landsliðsmaður frá Wales kom til Tottenham frá Cardiff á þrjár milljónir punda í janúar í fyrra.
Hann hefur hins vegar ekki fengið mörg tækifæri síðan að Harry Redknapp tók við Tottenham í október og aðeins leikið einn leik síðan þá.
Gunter mun nú hjálpa Nottingham Forest í fallbaráttunni í ensku Championship deildinni en hann hoppar væntanlega beint inn í leikmannahópinn gegn Burnley á morgun.

Heimild: BBC