Fotbolti.net
13.03.09 - 18:00
Hafliði Breiðfjörð

Kristín Sverrisdóttir í KR (Staðfest)

Kristín Sverrisdóttir í leik með Þrótti síðasta sumar.

Kristín Sverrisdóttir í leik með Þrótti síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
KR fékk liðsstyrk í dag þegar Kristín Sverrisdóttir gekk í raðir félagsins frá Þrótti. Kristín mun spila sinn fyrsta leik fyrir KR er liðið mætir Aftureldingu í Lengjubikar kvenna á sunnudag.
Kristín Sverrisdóttir er 17 ára gömul. Hún getur leikið sem kantmaður eða miðjumaður.

Hún var einn efnilegasti leikmaður Þróttar og hóf meistaraflokksferil sinn hjá félaginu á síðasta ári er hún lék fjóra leiki í 1. deildinni og einn í bikarnum.

Hún á að baki fimm leiki með U17 ára landsliði Íslands, alla á síðasta ári.

Kristín er annar leikmaðurinn sem KR fær frá Þrótti því áður hafði Diljá Ólafsdóttir komið þaðan.

Auk þeirra hefur KR fengið til liðs við sig Guðrúnu Ólöfu Olsen frá Keflavík, Lilju Dögg Valþórsdóttur úr HK/Víking og Mist Edvardsdóttur, Agnesi Þóru Árnadóttur og Júlíönu Einarsdóttur úr Aftureldingu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.