13.04.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Daniel Howell í Gróttu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grótta hefur samið við bandaríska framherjann Daniel Howell en hann mun leika með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.
Howell þessi er 23 ára gamall en hann fékk leikheimild með Gróttu í gær.
Á dögunum fór Howell með liði Gróttu í æfingaferð til Spánar en hann skoraði meðal annars öll mörk liðsins í 3-3 jafntefli gegn Grindavík.
Grótta sigraði aðra deildina í fyrra en liðið mun leika í fyrstu deildinni í sumar í fyrsta sinn í sögu félagsins.