Fotbolti.net
13.04.10 - 17:48
Magnús Már Einarsson

Davíð Logi Gunnarsson í Þrótt (Staðfest)

Davíð Logi Gunnarsson í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur hefur fengið framherjann Davíð Loga Gunnarsson til liðs við sig frá Gróttu.
Davíð Logi þekkir vel til hjá Þrótti þar sem hann hefur leikið með liðinu lengst af á ferli sínum.

Síðast lék Davíð með Þrótti frá 2004-2006 en hann lék síðan með Leikni R. sumarið 2007.

Undanfarin tvö ár hefur Davíð Logi leikið með Grótta en í fyrra kom hann við sögu í þremur leikjum í annarri deildinni.

Auk þessara félaga hefur Davíð Logi einnig leikið með Selfossi og Haukum á ferli sínum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.