Fotbolti.net
13.04.10 - 15:38
Magnús Már Einarsson

Andrew Bazi í Fylki (Staðfest)

Andrew Bazi í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Ástralski markvörðurinn Andrew Bazi hefur gengið til liðs við Fylkismenn.
Andrew hefur æft með Fylki síðan í febrúar en hann hefur núna fengið leikheimild með liðinu sem þýðir að hann getur verið í leikmannahópnum gegn Grindavík í leik í Lengjubikarnum á fimmtudag.

Í fyrra var Andrew á mála hjá Assyriska í Svíþjóð en hann lék með varaliði félagsins í neðri deildum þar.

Andrew, sem æfði einnig með KR fyrr í vetur, mun berjast við Fjalar Þorgeirsson um markvarðarstöðuna hjá Fylki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.