Fotbolti.net
13.04.26 - 12:50
Kári Snorrason

Rúnar ósáttur með Sigurð Hjört - „Þá er hann á rangri hillu“

Sigurður Hjörtur Þrastarson.

Sigurður Hjörtur Þrastarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var ósáttur með seinna gula spjald sem Jakob Byström fékk fyrir leikaraskap. Böðvar Böðvarsson stjakaði við Byström í teig Skagamanna í uppbótartíma og Svíinn féll við.

Sigurður Hjörtur Þrastarson, dómari leiksins, mat það sem svo að um leikaraskap væri að ræða og gaf Byström sitt seinna gula spjald. Rúnar ræddi um dóminn í samtali við Sýn Sport að leik loknum.
Lestu um leikinn: Fram 3 - 3 ÍA
„Þetta er aldrei gult spjald á Jakob fyrir leikaraskap inn í vítateig. Böðvar setur aðra hendina á hann og svo hina og hrindir honum niður.

Að mínu viti er þetta frekar vítaspyrna heldur en að gefa honum gult spjald og reka hann út af fyrir seinna gula spjaldið. Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu sko. Að mínu viti er þetta bara klár vítaspyrna,“
sagði Rúnar í samtali við Sýn Sport eftir leik.

Rætt var nánar um atvikið og umferðina í heild sinni í Innkastinu. Þáttinn má nálgast í spilaranum hér að neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Innkastið - Ferskir nýliðar og vandræðagangur hjá Val

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.