Fotbolti.net
13.05.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Andri Sigurjónsson í KFG (Staðfest)

Andri Sigurjónsson í KFG (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

KFG úr Garðabæ hefur fengið miðjumanninn Andra Sigurjónsson til liðs við sig frá Stjörnunni.
Andri sem er 21 árs, á að baki 6 leiki með U17 landsliði Íslands, auk 9 leikja í efstu deild með Stjörnunni.

Í fyrra var Andri síðara hluta tímabilsins á láni hjá BÍ/Bolungarvík þar sem hann hjálpaði liðinu að komast upp um deild.

Þar áður var hann í nokkra mánuði á láni hjá SV Straelen í Þýskalandi.

KFG leikur í þriðju deildinni en liðið mætir Stál-Úlfi í fyrsta leik sumarsins eftir eina viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.