Fotbolti.net
13.05.11 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Sævar Péturs, fjórir Skotar og Þjóðverji í Einherja (Staðfest)

Sævar Pétursson (til hægri).

Sævar Pétursson (til hægri).

Canon

Mynd: Valgeir Kárason

Einherji frá Vopnafirði ætlar sér stóra hluti í þriðju deildinni í sumar og félagið hefur fengið nokkra nýja leikmenn til liðs við sig.

David Hannah, fyrrum leikmaður Grindavíkur, Fylkis og Fjarðabyggðar verður spilandi þjálfari en hann er væntanlegur til landsins á morgun.
Hannah hefur fengið þrjá skoska leikmenn með sér til Íslands en það eru Galy Muckersie, Reece Ritchie, Paul Thomson.

Gamla kempan Sævar Pétursson hefur einnig gengið til liðs við Einherja en hann lék síðast með Tindastól árið 2009.

Þá hefur Einherji einnig fengið þýska markvörðinn Simon Tomas til liðs við sig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.